Þrívíddarprentun
Plastþráður er bræddur og lagður lag fyrir lag þar til hluturinn er kominn. Þetta er kjörin aðferð fyrir rúmfræðileg form, hol stykki og frumgerðir.
- Rúmfræðilegir hlutir og ávöl form
- Varahlutir og lítil gangverk
- Frumgerðir og líkön
- Fígúrur og skraut
Takmarkanir: Plastið sem er lagt skilur eftir rákir sem sjást í návígi. Mjög smá smáatriði og stykki sem þurfa að þola mikið álag metum við í hvert sinn.